Fréttir

Sextán umsækjendur valdir til náms í Lögregluskólanum

4 des. 2013

Valnefnd Lögregluskóla ríkisins hefur lokið störfum og voru 68 umsækjendur um skólavist metnir hæfir eftir að hafa staðist inntökupróf og mætt í viðtal hjá valnefndinni (sjá vef lögreglunnar).

 

Með tilliti til áætlaðra fjárheimilda Lögregluskóla ríkisins var lagt fyrir valnefndina að miða við að 16 nemendur kæmu til með að hefja nám við grunnnámsdeild skólans á næsta ári og valdi hún þá sérstaklega en aðrir umsækjendur voru valdir sem varamenn í tiltekinni röð.

 

Öllum hæfum umsækjendum hefur verið sent bréf þar sem annað hvort kemur fram að þeir séu í hópi þeirra 16 umsækjenda sem valnefndin hefur valið til náms á framangreindum forsendum eða valdir sem varamenn.

Til baka