Fréttir

Lögreglumessan 1. maí 2015

30 apr. 2015

Hin árlega 1. maí Lögreglumessa verður að þessu sinni haldin í Laugarneskirkju í Reykjavík.

 

Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir þjónar fyrir altari.  Ræðumaður verður Vilhjálmur Árnason, þingmaður og fv. lögreglumaður og Lögreglukórinn syngur undir stjórn Guðlaugs Viktorssonar.

 

Lögreglukórinn hvetur lögreglumenn, fjölskyldur þeirra og samstarfsfólk í lögreglunni til að fjölmenna og taka þátt í þessum hátíðlega viðburði.

 

Að lokinni messunni verður léttur hádegisverður í boði Landssambands lögreglumanna.

 

lögreglumessa 2015 - minni

 

Til baka