Fréttir

Ályktun stjórnar Lögreglustjórafélags Íslands um kjaramál lögreglumanna

1 okt. 2015

Stjórn Lögreglustjórafélags Íslands samþykkti á fundi sínum í dag að brýnt væri að ljúka samningum við Landssamband Lögreglumanna hið allra fyrsta. Störf lögreglumanna eru afar mikilvæg fyrir íslenskt samfélag og án öflugrar löggæslu fær það ekki þrifist til lengdar.

 

Stjórnin hvetur samingsaðila til að ljúka samningum hið allra fyrsta.


Stjórn Lögreglustjórafélags Íslands, hinn 1. október 2015

Til baka