Fréttir

Lögreglustjórafélagið ályktar vegna kjaradeilu lögreglumanna

2 okt. 2015

 

Hér að neðan er ályktun nýafstaðins fundar lögreglustjórafélagsins þar sem félagið ályktar um nauðsyn þess að ríkisvaldið ljúki við gerð kjarasamninga við lögreglumenn hið fyrsta:

 

Ályktun stjórnar Lögreglustjórafélags Íslands um kjaramál lögreglumanna.

 

Stjórn Lögreglustjórafélags Íslands samþykkti á fundi sínum í dag að brýnt væri að ljúka samningum við Landssamband Lögreglumanna hið allra fyrsta. Störf lögreglumanna eru afar mikilvæg fyrir íslenskt samfélag og án öflugrar löggæslu fær það ekki þrifist til lengdar.

 

Stjórnin hvetur samingsaðila til að ljúka samningum hið allra fyrsta.

 

Stjórn Lögreglustjórafélags Íslands, hinn 1. október 2015.

Til baka