Fréttir

Skólastjórafélag Íslands ályktar um kjaradeilu LL við ríkisvaldið

13 okt. 2015

Á ársfundi Skólastjórafélags Íslands, sem haldinn var í Reykjanesbæ þann 10. október s.l. var samþykkt eftirfarandi ályktun og hvatning til fjármálaráðherra og ríkisstjórnar Íslands vegna kjaradeilu Landssambands lögreglumanna við ríkisvaldið:

 

„Ályktanir – hvatning til fjármálaráðherra og ríkisstjórnar Íslands

Ársfundur Skólastjórafélags Íslands haldinn í Reykjanesbæ laugardaginn 10. október 2015 hvetur fjármálaráðherrra og ríkisstjórn Íslands til að heimila samninganefnd sinni að gera mannsæmandi kjarasamninga við lögreglumenn strax í stað þess að mæta eðlilegum kröfum þeirra með sinnuleysi og aðgerðum þeirra með hótunum um lögsókn.“

Til baka