33. þing LL 2016 – setning og fyrsti þingdagur
25 apr. 2016
33. þing Landssambands lögreglumanna var sett í Munaðarnesi kl. 10:00 í morgun og hófst þingið með setningarræðu Snorra Magnússonar formanns LL. Að lokinni setningarræðu formannsins hófust svo venjubundin þingstörf skv. dagskrá þingsins eins og fyrir er mælt í lögum LL.
Yfirskrift 33. þings LL er:
„LÖGGÆSLA Á BRAUÐFÓTUM“
Fyrri þingdagurinn af tveimur er nú að kvöldi kominn og hafa þingstörfin gengið framar vonum í dag. Nefndastörf hófust strax upp úr hádegi og eru einhverjar nefndir enn að störfum þegar þetta er ritað kl. 20:30.