Nýútkomin skýrsla greiningardeildar RLS staðfestir orð LL um stöðu löggæslumála á Íslandi
24 okt. 2017
Út er komin ný skýrsla greiningardeildar Ríkislögreglustjórans „Skipulögð glæpastarfsemi 2017 – Mat greiningardeildar ríkislögreglustjóra á skipulagðri glæpastarfsemi“ en fjallað er um úkomu hennar m.a. á mbl.is og visir.is.
Í skýrslunni er staðfest það sem LL hefur verið að halda fram undanfarin misseri um m.a. ástand löggæslumála, fjárskort, manneklu, álag sem og veikindi og slys á lögreglumönnum en um það má m.a. lesa á bls. 4 í skýrslunni þar sem byggt er á svörum lögregluliðanna í landinu við spurningum sem lagðar voru fyrir þau við gerð skýrslunnar:
„ Skipulögðum brotahópum hefur vaxið ásmegin.
Nýir brotahópar hafa myndast.
Framboð sterkra fíkniefna er mikið.
Framboð kannabisefna er mikið.
Framboð vændis hefur aukist mikið og það kann, í einhverjum tilvikum hið minnsta, að tengjast mansali og skipulagðri glæpastarfsemi.
Sterkur grunur er á vinnumansali.
Skortur á lögreglumönnum þ.m.t. rannsóknarlögreglumönnum.
Ekki fer fram nægileg frumkvæðisvinna vegna manneklu og fjárskorts.
Víða á landsbyggðinni verður þess ekki vart að skipulagðir hópar afbrotamanna hafi myndast en tengingar við slíka hópa eru til staðar.
Þjófnuðum, innbrotum og innbrotahrinum hefur almennt fækkað.
Verkefnum lögreglu hefur fjölgað.
Lögreglan glímir við aukið álag.
Fjarvist vegna veikinda og slysa hefur aukist.„
Í skýrslunni (bls. 6) segir ennfremur um hið aukna álag á lögreglunna, sem skýrslan staðfestir:
„Eftir því sem skipulögð glæpastarfsemi eykst og verður alvarlegri hefur hún meiri áhrif á öryggisstigið í landinu. Álag á almenna löggæslu og rannsóknardeildir eykst auk þess sem slíkt kallar á stóraukna frumkvæðislöggæslu á sviði afbrotavarna.“