Fréttir

Desemberuppbót 2019

5 des. 2019

Samkomulag er um að desemberuppbót verði með sama sniði og verið hefur.  Kjarasamningar eru lausir hjá öllum viðsemjendum BSRB sem og fleiri stéttarfélögum og bandalögum opinberra starfsmanna.

Samkomulag hefur náðst um að desemberuppbót árið 2019 verði kr. 92.000,- miðað við fullt starf:

Starfsmaður sem er í starfi fyrstu viku nóvembermánaðar fær greidda desemberuppbót miðað við fullt starf tímabilið frá 1. janúar til 31. október.  Desemberuppbót er föst krónutala og tekur ekki hækkunum samkvæmt öðrum ákvæðum kjarasamningsins og skal hún greidd út eigi síðar en 15. desember 2019.

Hafi starfsmaðurinn gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall.

Tímavinnufólk þarf að hafa skilað 1504 dagvinnustundum á tímabilinu 1. janúar til 31. október til að fá 100% desemberuppbót.  Tímavinnustarfsmaður sem vinnur færri klukkustundir á tímabilinu fær greitt hlutfallslega samkvæmt því.

Til baka