Fréttir

Ávísun á frábært sumar – bestu kjörin á gistingu

19 jún. 2020

Við bjóðum félagsmönnum okkar í Landssambandi lögreglumanna að kaupa ferðaávísun sem tryggir bestu kjörin á gistingu á hótelum og gistiheimilum um allt land. Stéttarfélögin sem eiga aðild að Frímann-kerfinu hafa sameinað krafta sína og komist að samkomulagi við fjölmörg hótel og gistiheimili víðs vegar um landið. Þau hafa boðið félagsmönnum okkar gistingu á afar hagstæðum kjörum. Til viðbótar niðurgreiðum við gistinguna um 40%, eða að hámarki um 42.000 krónur á hverju almannaksári.

Félagsmenn skrá sig inn á orlofsvefinn og kaupa þar ferðaávísun sem gildir á tugum hótela og gistiheimila í öllum landsfjórðungum, án þess að festa dagsetningu dvalarinnar. Þeir velja upphæð ávísunarinnar og greiða fyrir. Þeir bóka því næst gistingu á þeim stað sem þeim hugnast en herbergi, þjónusta og verð er breytilegt á milli gististaða.

Ef svo háttar að umrætt hótel eða gistiheimili er fullt, eða ef ferðaáætlunin tekur breytingum þegar nær ferðinni dregur, er hægt að nota ávísunina hjá hvaða samstarfsaðila sem er, hvenær sem gistipláss er laust og með hvaða tilboði sem er. Þannig hafa félagsmönnum verið tryggð bestu hugsanlegu kjör og útilokað að þeir fari á mis við betri tilboð, til dæmis þegar líður á komandi sumar.

Sértilboð fyrir stéttarfélög

Þegar farið er inn á orlofsvefinn, og smellt á „Ferðaávísun“, opnast síða þar sem hægt er að skoða þau fjölmörgu tilboð á gistingu sem félagsmönnum standa til boða. Í boði er allt frá einfaldri gistingu á litlum gistiheimilum upp í vegleg hótelherbergi með fullri þjónustu og dýrindis morgunverði. Einnig er hægt að velja upphæð að eigin vali, til dæmis 5.000 eða 15.000 krónur, og nota hvar sem er þegar land er lagt undir fót. Ávísunin veitir aðgang að bestu tilboðum þessara hótela og gistiheimila. Valið er þitt.

Engin binding og aukið frelsi

Ferðaávísunin er rafræn og er geymd á þínu svæði á orlofsvefnum. Ávísunin leysir af hólmi gistimiða sem hingað til hefur þurft að nálgast til félagsins og framvísa á fyrir fram ákveðnum gististað. Þessu nýja fyrirkomulagi fylgir meira frelsi og stórauknir valmöguleikar, enda er ávísunin ekki bundin við tilteknar dagsetningar, einstakt gistiheimili, hótel eða hótelkeðju. Jafnframt geta félagsmenn nýtt ávísunina með hvaða sértilboðum sem samstarfsaðilar okkar kunna að bjóða síðar. Ekki er þörf á að fullnýta þá inneign sem félagsmenn eiga í formi ávísunarinnar hjá einu hóteli eða gistiheimili, heldur getur hún nýst á fleiri gististöðum. Ef dýrari gisting er valin en upphaflega stóð til, greiðir félagsmaðurinn einfaldlega mismuninn á staðnum.

Óhætt er að skora á félagsmenn að huga tímanlega að því að panta gistingu, til að auka líkurnar á að herbergi séu laus á gististaðnum. Hér má kaupa ferðaávísun.

Til baka