Fréttir

Styttri vinnuvika – Yfirvinna við óvæntar og tímabundnar aðstæður

18 mar. 2021

Nú þegar unnið er að skipulagningu vaktaskráa fyrir fyrsta tímabilið í nýju kerfi, sem tekur gildi 1. maí 2021, er rétt að minna á að vaktaplön skulu ekki gera ráð fyrir skipulagðri yfirvinnu.

Í fylgiskjali II um samkomulag um útfærslu vinnutíma vaktavinnufólks er sérstaklega fjallað um breytilega yfirvinnu.

Þar segir:

„…. Jafnframt eru samningsaðilar sammála um að breytileg yfirvinna skuli eingöngu unnin við óvæntar og tímabundnar aðstæður s.s. vegna veikinda, neyðar, tímabundins álags eða skorts á starfsfólki.  Því er beint til stofnana/sveitarfélaga að setja nánari reglur varðandi yfirvinnu og hvenær sé rétt að ræða endurskoðun á starfshlutfalli ef yfirvinna er reglubundin eða fyrirséð, sbr. gr. 2.3.6.“

Til baka