Fréttir

Stytting vinnuvikunnar – nýjar spurningar og svör

22 mar. 2021

Nýjum spurningum og svörum við þeim hefur verið bætt við í Spurt og svarað undir heitinu ,,Nýjar spurningar – mars 2021.

Spurningarnar hafa komið upp á fundum verkefnastjórnar með annars vegar launafólki og hins vegar launagreiðendum eða í gegnum fyrirspurnir á betrivinnutimi@rikissattasemjari.is.

Eftirfarandi spurningar eru undir flokknum ,,Nýjar spurningar – mars 2021″:

  • Hvað þýðir staða vinnuskila?
  • Hvað gerist ef vinnuskil passa ekki og unnar eru of margar klst. á ákveðnu tímabili? Munu vaktakerfin halda utan um það og hvernig?
  • Hvernig teljast sérstakir frídagar og stórhátíðardagar upp í vaktahvata?
  • Hvernig telst orlofsdagur upp í vaktahvata?
  • Get ég fengið vaktahvata í orlofi?
  • Hvernig greiðist vaktahvati fyrir tímabilið 1.-15. maí?
  • Hvernig breytist bakvaktaálag í nýja kerfinu?

Til baka