Fréttir

Eyðublað vegna tilkynninga um kerfisfrávik í Vinnustund

9 apr. 2021

Útbúið hefur verið sérstakt eyðublað sem notendum Vinnustundar er bent á að nota til að tilkynna kerfisfrávik.  Eyðublaðið og tilkynningarnar eru tilkomnar vegna ýmissa hnökra sem hafa verið að koma í ljós á Vinnustund vegna vinnunnar í tengslum við styttingu vinnuvikunnar.

Kerfisfrávikum er safnað saman af Sunnan10 ehf. og komið til Vinnustundarhóps Advania.

Eyðublaðið má nálgast hér.

Til áréttingar eru haldnir daglegir stöðufundir vegna breytinga á Vinnustund og eru upplýsingar settar inn á vef Fjársýslunnar (FJS) sem fréttir.  Finna má allar fréttirnar á forsíðu vefsins.

Ef ábendingar eða fyrirspurnir vegna vaktakerfa/viðverukerfa snerta annað en villumeldingar/frávik í kerfum er bent á netföng fyrir hvern launagreiðanda:

  • Ríki – Fjársýslan:   laun@fjs.is

Enn og aftur er félagsmönnum LL bent á að kynna sér vel þær ítarlegu upplýsingar vegna styttingar vinnuvikunnar sem er að finna á heimasíðunum:

Betri vinnutími   (sérstaklega vegna betri vinnutíma í vaktavinnu hér) og

Styttri

 

Til baka