Fréttir

Norðurlandamót í handbolta

25 okt. 2022

Mótið var haldið í Sollentuna í Stokkhólmi 9. -12. maí 2022

Það var glaðvær hópur 36 lögreglumanna sem fór um borð í vél Icelandair til Stokkhólms snemma að morgni 9. maí. Fimmtán leikmenn karlaliðsins, sextán leikmenn kvennaliðsins, auk þjálfara, nuddara og fararstjóra.

  • Jóhann Karl Þórisson, LRH, var fararstjóri og annar þjálfari kvennaliðs.                                                  
  • Árni Friðleifsson, LRH, var þjálfari kvennaliðs.                       
  • Valgarður Valgarðsson og Birgir St. Jóhannsson RLS, þjálfarar karlaliðs.                                
  • Kristján Freyr Geirsson, Suðurnesjum, var nuddari liðanna.                                                                                          
  • Hafdís Björk Albertsdóttir, LRH, var leikmaður og til aðstoðar á bekknum. 

Hótelið var mjög vel staðsett í miðbæ Sollentuna og kætti það kvenþjóðina mikið að risastór verslunarmiðstöð var við hliðina á hótelinu. Herbergin voru stór og góð svo ekki væsti um mannskapinn meðan á dvölinni stóð. Sundlaug og SPA voru á hótelinu og þannig séð allt til alls.

Kvennalið ÍSL var svo skipað: Hafdís B. Albertsdóttir, Berglind B. Jónsdóttir, Elín Hrafnsdóttir, Fanney Þ. Þórsdóttir, Margrét K. Jónsdóttir,  Hildigunnur Jónasdóttir, Martha S. Haraldsdóttir, Júlíana Birgisdóttir, Sólveig Sverrisdóttir, Þórgunnur Þórðardóttir og Þórhildur V. Kjartansdóttir frá LRH. Sóley Haraldsdóttir, Vestmannaeyjum, Guðrún Árnadóttir, héraðssaksóknara, Guðrún Helga Tryggvadóttir, Norðurlandi vestra, Katrín Vilhjálmsdóttir og Selma Sigurðardóttir, Norðurlandi eystra.

Karlalið ÍSL var svo skipað: Sigurjón Þórðarson, Erlingur Ö. Árnason, Björn Jóhannsson, Franz J. A. Arnarsson, Guðjón R. Sveinsson, Hreiðar Ö. Z. Óskarsson og Vilhjálmur G. Hauksson frá LRH. Fannar Kristmannsson og Jón Brynjar Kjartansson Suðurnesjum. Kjartan Ægir Kristinsson og Jóhann G. Guðbjartsson, RLS. Grétar Stefánsson, héraðssaksóknara. Árni Guðmundsson, Suðurlandi, Aron D. Hauksson, Vestmannaeyjum, Guðmundur R. F. Vignisson, Norðurlandi eystra.

Úrslit leikja karlaliðsins:

Ísland 18 – Noregur 29
Það var ljóst strax í byrjun að á brattann væri að sækja, Norðmenn voru fastir fyrir og var brotið illa á Fannari á 14. mínútu og þurfti hann að fara af velli, það riðlaði leik liðsins og var staðan í hálfleik 14-8 Norðmönnum í vil. Staðan eftir 15 mín. í seinni hálfleik var 22-14.  Íslenska liðið varð svo fyrir áfalli á 19. mín. þegar Vilhjálmur Geir Hauksson tognaði aftan í læri og lauk þar með keppni á mótinu. Jón Brynjar var markahæstur með 5 mörk.

Ísland 21 – Svíþjóð 31                  

Við áttum góðan leik í byrjun og héldum í við Svíana fram eftir leik. Eftir 15 mín. var staðan 8-5 fyrir Svíþjóð, í hálfleik var staðan 17-13. Við urðum svo fyrir áfalli er Fannar meiddist á 43. mínútu og þar með var mótið búið hjá honum. Jóhann Gunnar var markahæstur með 9 mörk en Fannar skoraði 5.

Ísland 13 – Danmörk 29

Síðasti leikur strákanna var kl. 13:00 miðvikudaginn 11. maí. Danir voru sterkari. Sigurjón Þórðarson átti stórleik í markinu og varði alls 17 skot. Hann fékk boltann í andlitið úr vítakasti og var danska vítaskyttan rekin af velli með rautt spjald eftir þá uppákomu. Jóhann Gunnar var markahæstur Íslands með 5 mörk.

Úrslit leikja kvennaliðsins:

Ísland 12 – Noregur 31

Það var ljóst frá byrjun að við ofurefli var að etja, þær norsku keyrðu hraðaupphlaupin mjög stíft, í hvert skipti er við misstum boltann eða skorðum ekki geystust þær fram völlinn og markmaðurinn dældi löngum sendingum á þær. Þegar við náðum að stilla upp í vörn áttum við í fullu tré við þær. Fanney Þóra var markahæst með sex mörk.

Ísland 18 – Danmörk 28

Jafnræði var með liðunum fyrstu mínúturnar en hægt og bítandi jók danska liðið forskotið, 16-8 var staðan í hálfleik. Við áttum í raun aldrei séns. Fanney var markahæst með sjö mörk en Katrín skoraði fim.

Ísland 12 – Svíþjóð 24

Síðasti leikurinn var við heimamenn. Úr varð hörkuleikur og jafnt á flestum tölum þar til um 15 mín. voru eftir. Þá dró í sundur með liðunum og Svíþjóð vann að lokum með 12 mörkum. Fanney var sem fyrr markahæst, með sex mörk.

Lokaorð

Bæði liðin okkar höfnuðu í fjórða sæti. Noregur sigraði í kvennaflokki og Danmörk í karlaflokki. Fanney Þóra var valin besti leikmaður kvenna á mótinu. Þetta er í annað sinn sem íslenskur leikmaður er valinn bestur á mótinu en Katrín Vilhjálmsdóttir fékk þessi verðlaun á síðasta Norðurlandamóti. Svo skemmtilega vildi til skemmtilega til að fyrstu feðgar í móti á vegum ÍSL tóku þátt en það voru Kjartan Ægir Kristinsson og sonur hans Jón Brynjar Kjartansson.

Markahæstu leikmenn okkar á mótinu voru Fanney Þóra með 19 mörk og Jón Gunnar með 15 mörk.

Jóhann Karl Þórisson, fararstjóri
Greinin birtist fyrst í Lögreglumanninum 2. tbl. 2022

 

Til baka