Fréttir

Opnunartími skrifstofu LL og sumarlokun 2023

4 júl. 2023

Almennur opnunartími skrifstofu LL er alla virka daga milli klukkan 09-12 og 13-15. Sími skrifstofunnar er 525-8360.

Líkt og undanfarin ár hægist á starfsemi og skrifstofu LL yfir hásumarið og er opnun og starfsemi skrifstofu Landssambands lögreglumanna skert í júlímánuði vegna sumarleyfa. Sumarlokun skrifstofu verður frá og með mánudeginum 17. júlí til og með 4. ágúst. Skrifstofan opnar aftur eftir sumarleyfi þriðjudaginn 8. ágúst en næstu fundir sjóðsstjórna og nefnda eru í ágúst.

Bent er á að unnt er að nálgast helstu þjónustu, senda umsóknir um styrki, bóka orlofshús, kaupa ferðaávísun, veiði- og útilegukort, gjafabréf o.s.frv. á heimasíðu félagsins www.logreglumenn.is, á mínum síðum og á orlofsvef og skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.

Einnig hægt að senda erindi með tölvupósti á ll@bsrb.is eða ll@logreglumenn.is en fylgst verður með innsendum erindum og brugðist við eftir atvikum og tilefni.

Landssamband lögreglumanna óskar félagsmönnum gleðilegs sumars.

Til baka