Fréttir

Ávarp formanns LL á 1. maí 2025

1 maí. 2025

Góðir félagar.
Til hamingju með baráttudag verkalýðsins. Þrátt fyrir að við lögreglumenn séum með gildan kjarasamning til apríl 2028 þá heldur baráttan alltaf áfram fyrir auknum réttindum og öryggi og að standa vörð um þau réttindi sem við höfum nú þegar náð með áratuga baráttu. Í dag 1.maí fá lögreglumenn greitt út samkvæmt launahækkun sem tók gildi þann 1.apríl síðastliðinn sem er að meðaltali 3,5% launahækkun og tvær slíkar hækkanir koma svo síðar á samningstímanum. En þrátt fyrir þetta vinnum við stöðugt að meiri umbótum og hærri launum. Lögreglumenn eru ein af þeim stéttum sem vinna alla daga ársins við að hjálpa öðrum borgurum landsins og eiga skilið aukna virðingu og aukna umbun fyrir sín störf.
1.maí í ár er helgaður því að 55 ár er síðan konur á Íslandi lögðu niður störf einn dag í október og lömuðu með því samfélagið. Upphafið að þessu er jafnan talið vera þegar „Konur í rauðum sokkum“ báru styttu af Venusi aftast í kröfugöngu verkalýðsfélagana á 1.maí 1970. Árið 1974 höfðu fyrstu einkennisklæddu kvenkyns lögregluþjónarnir gengið til liðs við lögregluna í Reykjavík. Strax árið 1975 hafði þeim fjölgað og þær fjórar lögreglu konur sem voru við störf í október 1975 lögðu niður störf með öðrum konum og héldu á útifund á Lækjartorgi. Það er því við hæfi að við lögreglumenn hugsum í dag til þessara kvenkyns brautryðjenda og fögnum því sem lögreglumenn hafa lagt á vogarskálar jafnréttis. Í dag starfa um 332 konur í lögreglunni um allt land sem eru um 30% af starfandi lögreglumönnum svo margt hefur gerst á fimmtíu árum. En jafnréttisbaráttan heldur stöðugt áfram. Til þess að minnast þess að „ Konur í rauðum sokkum“ gengu í kröfugöngunni 1.maí fyrir 50 árum er fólk hvatt til að klæðast einhverju rauðu í göngunni í dag.
Ég vil hvetja okkur öll til að halda áfram að huga að jafnrétti allra hópa í samfélaginu og standa vörð um það.
Lögreglumenn munu svo samkvæmt hefðinni hittast í Lögreglumessu á 1.maí og í dag er messan klukkan 17 í Kirkju Óháða safnaðarins. Þar verða að auki lögreglumenn sæmdir heiðursmerkjum LL.

Til baka