Rafrænt fréttabréf sent félagsfólki
15 feb. 2026
Rafrænt fréttabréf var sent félagsmönnum í tölvupósti 11. febrúar sl.
Í fréttabréfinu er mikið lesefni. Þar kemur meðal annars fram að Landssamband lögreglumanna gagnrýnir vinnubrögð stjórnvalda og segir skorta samráð við félagið í mikilvægum réttinda- og starfsumhverfismálum. Sérstaklega er varað við áformum um að afnema áminningarskyldu, sem sambandið telur mikla skerðingu á réttindavernd lögreglumanna.
Einnig er greint frá því að formaður LL sé að hefja fundaröð um landið til að hitta félagsfólk og ræða stöðu og hagsmunamál. Fjallað er um helstu niðurstöður skýrslu kjaratölfræðinefndar og bent á að verðbólga hafi farið vaxandi á ný.
Þá er sagt frá þróun í Noregi þar sem margir lögreglumenn hafa hætt störfum vegna erfiðra starfsskilyrða. Að lokum eru kynnt ýmis orlofsmál, framkvæmdir við orlofshús, aðalfundur lífeyrisþegadeildar og breytingar á starfsemi skrifstofu LL.
Félagar eru hvattir til að kynna sér efni fréttabréfsins.