Fundir formanns með lögreglumönnum
17 feb. 2026
Fjölnir Sæmundsson formaður LL mun á árinu 2026 mæta til samtals við félagsfólk og var fyrsti fundur haldinn á Akureyri föstudaginn 6. febrúar í samstarfi við Lögreglufélag Eyjafjarðar. Formaður og framkvæmdastjóri áttu fund með LL-félögum þar sem til umræðu voru m.a. starfsumhverfismál, lífeyrismál, málefni LL, kjaramál o.fl. Jafnframt áttu formaður og framkvæmdastjóri sérstakan fund með trúnaðarmönnum. Fundirnir voru mjög vel heppnaðir og mikilvægir.
Fundur númer tvö í röðinni verður svo á Austurlandi fimmtudaginn 12. febrúar nk. þar sem formaður og varaformaður munu mæta. Svæðisdeildir annast nánari undirbúning funda í samvinnu við LL, tilkynningar og skipulag. Fleiri fundir eru svo fyrirhugaðir seinna í vetur, vor og sumar, en tilgangurinn er m.a. að gefa lögreglumönnum tækifæri á að eiga beint samtal við forystu LL um málefni sem varða hagsmuni og starfsumhverfi lögreglumanna.