Aðalfundur lífeyrisþegadeildar LL 2026
19 feb. 2026
Aðalfundur lífeyrisþegadeildar LL fór fram í gær miðvikudaginn 18. febrúar. Á dagskrá fundarins voru venjuleg aðalfundarstörf þar sem var m.a. kosið í nýja stjórn deildarinnar og í ferðanefnd.
Nýja stjórn lífeyrisþegadeildar LL skipa formaður Hrafn Ásgeirsson. Smári Sigurðsson er nýr varaformaður og þá er Óskar Bjartmarz nýr ritari. Ferðanefnd var svo endurkjörin en hana skipa Óskar Sigurpálsson og Haraldur Sigurðsson.
LL minnir félaga í lífeyrisþegadeild á að tilkynningar og boð um fundi, kynningar, í sumarferð deildarinnar, o.fl., er sent til félaga í deildinni, en gæta þarf að því að samskiptaupplýsingar, tölvupóstfang og fleira sé rétt skráð hjá félaginu. Er rétt skráning upplýsinga einnig mikilvæg í tengslum við útsendingar á félagsblaði og rafrænu fréttabréfi.
Vel var mætt á aðalfundinn og var hann gagnlegur í alla staði. Um leið og fráfarandi stjórn og formanni eru þökkuð vel unnin störf er nýrri stjórn jafnframt óskað velfarnaðar.
Næsti fundur í deildinni verður auglýstur nánar síðar.