Fréttir

Páskaúthlutun 2026

19 feb. 2026

Opnað verður á umsóknir vegna páskaúthlutunar í orlofshús félagsins nk. miðvikudag, 11. febrúar, klukkan 09. Verður opið fyrir páskaumsóknir í tvær vikur og úthlutun tilkynnt að þeim tíma liðnum.

Opnun á umsóknir vegna sumarúthlutunar verður auglýst nánar síðar en stefnt er að opnun í seinni hluta marsmánaðar.

Þá munu lífeyrisþegar njóta forgangs í orlofshús í byrjun sumars líkt og verið hefur undanfarin ár, og hefur verið miðað við miðjan og seinni hluta maímánaðar og fram í byrjun júní. Var ákveðið á fundi orlofsnefndar að miða við þriggja vikna tímabil, en þetta verður tilkynnt lífeyrisþegum og auglýst nánar síðar.

Sótt er um á Orlofsvefnum.

Til baka