Fréttir

Opnað fyrir bókanir félaga með 100-149 punkta

27 mar. 2026

Á morgun, laugardag klukkan 10:00, geta þeir félagsmenn sem eiga á bilinu 100-149 punkta bókað sér orlofseignir í sumar. Þeir geta nú bókað til 7. apríl áður en opnað verður fyrir alla nema lífeyrisþega. Hægt er að sjá punktastöðu á mínum síðum.

Félagsmenn geta valið sér tíma og stað eftir eigin óskum. Ekki er þörf á að bóka heila viku né að hefja dvölina á föstudegi. Lágmarksdvöl eru tvær nætur.

Hver félagi getur aðeins bókað eina dvöl yfir sumartímann. Reglan fyrstur kemur fyrstur fær gildir.

Við bókun dragast fimm punktar frá punktastöðu félagsmanns fyrir hvern dag sem bókað er.

Ganga þarf frá greiðslu við bókun.

Til baka