Fréttir

Sumarferð í Dalina 22. júní

20 maí. 2026

Sumarferð lífeyrisdeildar Landssambands lögreglumanna verður farin mánudaginn 22. júní. Að þessu sinni verður haldið í Dalina þar sem þátttakendur fá tækifæri til að aka saman um fallegar slóðir, skoða svæðið og njóta sumardagsins.

Lagt verður af stað frá Perlunni klukkan 08:00 um morguninn og verður Gísli Einarsson fararstjóri ferðarinnar. Gísli þekkir Dalina vel og mun leiða hópinn um svæðið ásamt því að segja sögur af sinni alkunnu snilld.

Skráning þarf að berast fyrir 1. júní og kostar ferðin 9.000 krónur á mann. Matur er innifalinn í verðinu. Makar eru velkomnir með í ferðina.

Tilkynnið um skráningu með pósti á netfangið ll@logreglumenn.is.

Til baka