„Verndaðu þá sem vernda þig“
29 sep. 2012
EuroCOP hefur um árabil staðið fyrir herferð (sjá hlekkinn hér í upphafi þessarar fréttar) til að vekja athygli stjórnvalda á þeirri staðreynd að ofbeldi gegn lögreglumönnum er alls ekki eitthvað sem líta má á sem venjubundinn þátt í því að starfa sem lögreglumaður! Árás á lögrelgumann að störfum er bein árás á þá þjóðfélagsskipan sem ríkjandi er í því landi þar sem ofbeldið á sér stað. Lögreglumenn eiga hreinan og skýran rétt til þess og heimtingu á að þeim sem falið hefur verið það hlutverk að dæma í slíkum málum dæmi þá sem beita lögreglumenn – o.þ.a.l. þjóðfélagið – ofbeldi til þyngstu mögulegrar refsingar.
Undanfarna daga hefur birst í fjölmiðlum umfjöllun um ofbeldi gegn lögreglumönnum á Íslandi og vægar refsingar (að því að lögreglumönnum finnst) yfir þeim sem beita slíku ofbeldi. Sitt sýnist hverjum í þessum efnum en staðreynd mála er hinsvegar sú að tilfinning og um leið fullyrðing lögreglumanna er sú að dómar í slíkum málum séu alltof vægir!