Verkfallsaðgerðir SFR og SLFÍ samþykktar
29 sep. 2015
Í nýafstaðinni kosningu samþykktu félagsmenn í SFR og SLFÍ, með yfirgnæfandi meirihluta, boðaðar verkfallsaðgerðir félaganna.
Niðurstaða kosninganna var kynnt á sameiginlegum blaðamannafundi SFR, SLFÍ og LL í húsakynnum BSRB við Grettisgötu kl. 14:00 í dag.
Á vef SFR er hægt að nálgast upplýsingar um hvenær og með hvaða hætti verkföllin hafa verið útfærð.
SFR:
Kosningaþátttaka var 63,8%
Já sögðu 85,15%
SLFÍ:
Kosningaþátttaka var 69,8%
Já sögðu 90,9%
Fréttir um niðurstöðuna:
Þá er einnig hægt að fylgjast nánar með kjarabaráttu félaganna á fésbókarsíðunni „Barátta 2015“