Félagsfundur Lögreglufélags Vesturlands
27 ágú. 2008
Félagsfundur Lögreglufélags Vesturlands var haldinn kl. 17:00 í dag, miðvikudaginn 27. ágúst, á lögreglustöðinni í Borgarnesi.
Á fundinn mættu formaður og framkvæmdastjóri LL og gerðu félagsmönnum grein fyrir stöðunni í samningamálum LL en samningar eru lausir frá 31. október n.k.
Góð aðsókn var að fundinum og margar fróðlegar og gagnlegar fyrirspurnir bornar fram af félagsmönnum LV.