Er fjárveitingavaldið vaknað?
23 júl. 2009
Gríðarleg umfjöllun hefur verið, í fjölmiðlum undanfarna daga, í kjölfar neyðarkalls sem barst frá lögreglumanni í byrjun vikunnar, n.t.t. þriðjudaginn 21. júlí s.l.
Síðustu fréttir af þessum málum eru þær að í umræðum á Alþingi sagði formaður allsherjarnefndar, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, að einsýnt væri að koma yrði til aukið fjármagn til lögreglunnar en málefni lögreglunnar munu hafa verið til umfjöllunar á fundi nefndarinnar nú í morgun. Fjallað var um þessi ummæli Steinunnar Valdísar í frétt á mbl.is í dag.
Það sem einna helst vekur athygli í allri umræðu liðinna daga er að ekkert er nýtt í henni. LL hefur bent á þessa hluti, í ræðu og riti undanfarnar vikur og mánuði þ.a. ástandið hefði átt að vera öllum – og fyrir löngu – ljóst! Þá umfjöllun er m.a. hægt að lesa á þessum vef.
Hluta umræðu liðinna daga er hægt að lesa á eftirfarandi tenglum:
„Niðurskurðurinn samsvarar þriggja daga vöxtum af Icesave“
„Lögreglufélag Reykjavíkur tekur undir neyðarkall lögreglumanns“
„Ráðherra tjáir sig ekki um neyðarkall frá lögreglumanni“
„Stjórnmálamenn þurfa að hlusta á sjónarmið lögreglunnar“
„Við erum ekki einu sinni reiðir lengur, við erum bara orðnir þreyttir“
„Afbrotafaraldur á höfuðborgarsvæðinu“