Málþing um starfsanda
5 okt. 2009
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og félag forstöðumanna ríkisstofnana standa fyrir málþingi á Grand Hótel í Reykjavík fimmtudaginn 15. október n.k. frá kl. 08:30 – 10:00.
Yfirskrift málþingsins er:
„Hvernig getum við varðveitt góðan starfsanda á tímum niðurskurðar og skerðinga á kjörum starfsmanna?“
Fyrirlestrar og holl ráð verða flutt af:
-
Árelíu Eydísi Guðmundsdóttur, dósent við viðskiptadeild Háskóla Íslands;
-
Arndísi Ósk Jónsdóttur, Msc. í vinnusálfræði og forstöðumanni mannauðsráðgjafar ParX;
-
Stefáni Eiríkssyni, lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins og
-
Ernu Einarsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðsmála hjá Landspítala háskólasjúkrahúsi.
„Hvernig getum við varðveitt góðan starfsanda á tímum niðurskurðar og skerðinga á kjörum starfsmanna?
Fimmtudaginn 15. október kl. 8:30 – 10:00 á Grand hótel í Reykjavík.
Annað málþing haustsins í samstarfi Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála og Félags forstöðumanna ríkisstofnana.
Fyrirlestrar og holl ráð; Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Arndís Ósk Jónsdóttir, Stefán Eiríksson og Erna Einarsdóttir.
Skráning: https://www.stjornsyslustofnun.hi.is/page/starfsandi
Verð: kr. 3.900.- og er morgunverður innifalinn.
Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi þessa viðfangsefnis frammi fyrir þeim áskorunum sem stjórnendur standa í þeim niðurskurði og skipulagsbreytingum sem framundan eru í rekstri opinberra stofnana, bæði ríkis og raunar sveitarfélaga einnig. Á málþinginu munu fræðimenn, fagfólk og reyndir stjórnendur fara yfir hagnýtar aðferðir og holl ráð sem stjórnendur geta nýtt sér við aðstæður dagsins í dag, þ.e. hvað stjórnendur geti gert til að stuðla að góðum starfsanda á erfiðum tímum og hvað stofnanir geti gert til að skapa menningu þar sem stutt er við starfsmenn á erfiðum tímum?
Fyrirlestrar:
Árelía Eydís Guðmundsdóttir, er dósent við viðskiptadeild Háskóla Íslands, en hún er höfundur bóka um köllun í starfi, virkjunar vonar og heppni í eigin lífi og um sveigjanleika fyrirtækja auk þess sem hún kennir um stjórnun, skipulagsheildir forystu og þekkingarstjórnun.
Arndís Ósk Jónsdóttir, MSc. í vinnusálfræði er kennari í mannauðsstjórnun í MPA-námi í opinberri stjórnsýslu og forstöðumaður mannauðsráðgjafar ParX viðskiptaráðgjafar IBM.
Á eftir þeirra erindum gefa holl ráð frá eigin reynslu þau Stefán Eiríksson lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, sem tekist hefur á við umfangsmikil breytinga- og skipulagsverkefni á liðnum árum og Erna Einarsdóttir framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Landspítala háskólasjúkrahúsi, en segja má að sú stofnun hafi verið í stöðugu umbreytinga- og sparnaðarferli frá stofnun hins sameinaða sjúkrahúss árið 2000.
Fundarstjóri verður Magnús Guðmundsson forstjóri Landmælinga Íslands og formaður Félags forstöðumanna ríkisstofnana.”