Skrifstofa LL lokuð nk. miðvikudag þann 13. apríl
11 apr. 2011
Á miðvikudaginn fer starfsfólk skrifstofu LL ásamt orlofsnefnd LL í Munaðarnes til að gera bústaðina klára fyrir páska- og sumarleiguna og því verður skrifstofan lokuð allan daginn.
Framkvæmdir hafa staðið yfir undanfarin mánuð og eru nú á lokastigi. Bústaður nr. 68 hefur fengið mikla upplyftingu og er í raun algerlega breyttur. Helstu atriði sem nefna má eru að bústaðurinn var hvíttaður, nýtt parket lagt bæði í alrými og í herbergjum, litla herbergið með kojunum var fjarlægt, allt endurnýjað á baðinu, ný borðstofu og stofuhúsgögn voru keypt og ljós endurnýjuð. Ísskápar í báðum bústöðunum voru endurnýjaðir og gúmmíhönskunum skipt út fyrir uppþvottavélar!
Það er von orlofsnefndar að breytingarnar takist vel og mælist vel fyrir hjá félagsmönnum. Myndir verða settar inn á vefinn í vikulok.