Fréttatilkynning LNV 23.september 2011
24 sep. 2011
Félagsfundur Lögreglufélags Norðurlands vestra lýsir yfir mikilli reiði og miklum vonbrigðum með niðurstöðu launaliðar gerðardóms er féll í dag 23 sept. Lítur fundurinn svo á að lögreglumenn hafi verið niðurlægðir af ríkisvaldinu enn og aftur eftir að hafa verið án kjarasamnings í nærri 300 daga.
Það er ljóst að lögreglumenn muni núna taka sér tíma til að sleikja sár sín og ákveða til hvaða aðgerða verði gripið í kjölfar dómsins.