Fréttir

Kynningar á niðurstöðu viðræðna LL og ríkis

28 okt. 2011

Kynningar á niðurstöðu í viðræðum Landssambands lögreglumanna og ríkisins sem fram fóru eftir að gerðardómur féll í kjaradeilu LL og SNR, eru byrjaðar.  Kynningar hafa nú þegar verið haldnar á Suðurnesjum, Austurlandi og á Vestfjörðum.

 

Hér fyrir neðan er yfirlit yfir þær kynningar sem eftir eru.  Ef einhverjar breytingar verða á tímasetningum mun verða reynt að koma þeim breytingum á framfæri við lögreglumenn í gegnum formenn svæðisdeilda.

 

  1. Norðurland – Akureyri, 31. okt. kl. 13:00
  2. Norðurland – Blönduós, 31. okt. kl. 17:00
  3. Reykjavík – Grettisgata 1. nóv. kl. 14:00 og kl. 20:00
  4. Vesturland – Borgarnes, 2. nóv. kl. 14:00
  5. Suðurland – Selfoss 3. nóv kl. 14:00
  6. Suðurland – Hvolsvollur 3. nóv. kl. 16:00
  7. Vestmannaeyjar, 4. nóv. kl. 13:00

Til baka